Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hitti ásamt öðrum norrænum forsætisráðherrum Narendra Modi forsætisráðherra Indlands á fundi í Ósló í morgun.
Þetta er í þriðja sinn á átta árum sem leiðtogar Norðurlandanna og Indlands hittast á slíkum fundi. Fréttaskýrendur segja þetta merki um að á tímum þar sem Bandaríkin reka fjandsamlegri stefnu en áður með tollum og hótunum, og Kína verði sífellt meira einræðisríki horfi Norðurlöndin til Indlands sem trausts samstarfs- og viðskiptafélaga.
Aukið samstarf Norðurlandanna og Indlands á ýmsum sviðum hefur reglulega verið til umræðu. Indverjar hafa til dæmis mikinn áhuga á samstarfi í grænum lausnum eins og vindmyllum og kolefnisförgun, sjóferðum og fjarskiptakerfum, meðan Norðurlöndin sjá möguleika í aðgengi að stórum markaði, stafrænni þróun og ódýrum orkulausnum. Aukið samstarf er því talið geta komið báðum til góða.
Samstarf við Indland er þó umdeilt vegna ýmissa mála. Barnaþrælkun er útbreidd, mismunun á sér stað milli trúarbragða og mengun er ein sú mesta í heiminum, að ógleymdu þrálátu stríði við Pakistan og Kína um Kasmír-hérað. Modi vill hins vegar kynna Indland sem framsækna þjóð sem sé tilbúin að taka stór skref, einkum í tæknimálum, með þeim sem vilja fjárfesta í landinu.
Blaðamannafundur með Modi og norrænu forsætisráðherrunuma verður haldinn eftir skamma stund. Síðar í dag hittast svo forsætisráðherrar Norðurlandanna sérstaklega og þar er gert ráð fyrir að varnarmál verði í brennidepli.