Sjómannasamband Íslands hefur í dag kjaraviðræður við Landssamband smábátaeigenda og Samtök smærri útgerða. Smábátasjómenn hafa verið samningslausir í tólf ár.
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir viðræðurnar vera á algjörum byrjunarreit. Til standi að báðar hliðar leggi fram sínar kröfur í dag.
„Viðræðurnar eru bara að fara í gang og vonandi verður fundað áfram í sumar,“ segir Valmundur. „Staðan ætti að fara að skýrast eftir nokkra fundi.“
Valmundur sagði í maí að vísa yrði deilunni til ríkissáttasemjara ef ekki tækist að blása lífi í viðræðurnar.
Sjómannasambandið og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi undirrituðu kjarasamning til fimm ára árið 2024. Valmundur segir það vera tilefni til bjartsýni varðandi yfirstandandi viðræður við smábátaeigendur.
„Ég er alltaf bjartsýnn,“ segir Valmundur. „Vonandi verður þessi samningur í þeim anda.“