Friðarsamkomulag hefur náðst milli Bandaríkjanna og Írans.
Frá þessu greina Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans og Donald Trump Bandaríkjaforseti. Samkvæmt heimildum AFP-fréttastofunnar verður samkomulagið undirritað í Genf í Sviss 19. júní.
„Nú þegar samkomulagið er í höfn munu sáttasemjarar standa fyrir röð funda í þessari viku. Þessar viðræður, sem fara fram fyrir undirritun, leggja grunninn að tæknilegum viðræðum og opinberu undirritunarathöfninni,“ skrifaði Shehbaz Sharif á samfélagsmiðilinn X, en hann hefur verið einn af aðalsamningamönnum í stríðinu í Miðausturlöndum sem hófst 28. febrúar með árás Bandaríkjanna á Íran.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði einnig að friðarsamkomulag við Íran væri „nú í höfn“. Lýsti hann því yfir að Hormúsund væri opið og að Bandaríkin myndu aflétta herkví sinni á sjó.
„Samningurinn við íslamska lýðveldið Íran er nú í höfn. Til hamingju!,“ sagði Trump á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, skömmu eftir að Pakistan, sem milligönguaðili, sagði að samkomulag hefði náðst.
„Ég heimila hér með að Hormúsund verði opnað að fullu án nokkurra gjalda, og heimila jafnframt tafarlausa afléttingu á herkví Bandaríkjahers á sjó. Skip heimsins, ræsið vélarnar. Látið olíuna flæða!“
Íranski herinn segir í yfirlýsingu að Bandaríkin og Ísrael hafi verið niðurlægð.
Íranskar hersveitir hafi „með því að beita guðlegum vilja sínum niðurlægt óvini sína, bæði ameríska og síonista“ sem hafi átt þann kost einan að gefast upp.