Dómstóll í París hefur sýknað franskan skólaliða af ákæru um kynferðislegt ofbeldi gegn leikskólanemendum. Hann var hins vegar dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni gegn samstarfsfólki sínu.
Lögreglan í París rannsakar yfir 100 ásakanir um illa meðferð, líkamlegt ofbeldi og nauðganir á börnum allt niður í þriggja ára aldur í frönskum grunn- og leikskólum. Grunur leikur á að skólaliðar hafi beitt börnin ofbeldi í hádegishléum, hvíldartímum og eftir skóla.
Réttarhöldin í dag voru þau fyrstu síðan fjöldi ásakana um misnotkun skók Parísarborg. Þar hafa foreldrar sakað skólaliða um að hafa misþyrmt börnum sínum eða beitt þau líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi.
Maðurinn sem var sýknaður fyrir dómstólum í dag hafði verið ákærður fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn níu leikskólabörnum á aldrinum þriggja til fimm ára. Hann var einnig ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn tveimur kvenkyns samstarfsmönnum sínum frá september 2024 til apríl 2025.
Ákærði neitaði sök og var sýknaður af ákærunni þar sem dómari taldi ekki hægt að hefja yfir allan vafa að brotin hafi átt sér stað. Þá hlaut hann átta mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir brot gegn samstarfsmönnum sínum.
Á síðasta hálfa ári hefur Parísarborg sagt upp 132 skólaliðum, þar á meðal 52 sem grunaðir eru um kynferðisbrot gegn börnum. Borgarstjóri Parísar segir töluna mikið áhyggjuefni og að hún endurspegli kerfisbundið vandamál sem taka þurfi á.