Gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum sem handteknir voru í aðgerðum lögreglu í Reykjavík og Hveragerði í maí hefur verið framlengt til 9. júlí.
Mennirnir fimm, tveir Íslendingar og þrír erlendir ríkisborgarar, voru handteknir í aðgerðum lögreglu eins og áður hefur komið fram grunaðir um innflutning fíkniefna til landsins.
Fíkniefnin voru flutt til landsins með Norrænu, en um er að ræða kókaín og amfetamín.
Að sögn lögreglu miðar rannsókn málsins vel.