„Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar. Ísland er áfram náinn samstarfsaðili Evrópusambandsins,“ segir í stuttri yfirlýsingu þeirra en fjallað er um málið á vef Euronews.
Í fréttinni kemur einnig fram, líkt og á blaðamannafundi forystukvenna ríkisstjórnar fyrr í dag, að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi í dag skipst á skilaboðum við António Costa, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins. Í frétt Euronews er haft eftir talsmanni Costa að „báðir leiðtogar hafi lýst yfir vilja sínum til að halda áfram að styrkja sambandið milli ESB og Íslands“ í skilaboðunum.
„Costa forseti lagði áherslu á að ESB virði fullkomlega lýðræðislegt val íslensku þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni í dag. Ísland er áfram einn nánasti og traustasti samstarfsaðili ESB,“ sagði talsmaðurinn.
Nánar er fjallað um blaðamannafund ríkisstjórnarinnar að neðan en þar kom fram að ríkisstjórnin myndi virða niðurstöðu kosningarinnar og leggja aðildarviðræðurnar til hliðar.
Stækkunarstefnan í hættu
Í frétt Euronews segir að niðurstaðan sé talin geta dregið úr skriðþunga stækkunarstefnu sambandsins en Svartfjallaland er nú fremst í flokki og hefur lokað 18 af 33 aðildarköflum aðildarviðræðna.
Landið stefnir að því að verða 28. aðildarríkið árið 2028, sem hafi orðið kveikjan að slagorðinu „28 fyrir 28“.