Fósturfaðir grunaður um ítrekuð kynferðisbrot

Fangelsið á HólmsheiðiMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna gruns um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni sem hafði verið vistað hjá honum í fóstri. Þetta kemur fram hjá Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, sem starfar hjá lögreglunni á Suðurnesjum, í samtali við RÚV.
Maðurinn var handtekinn um miðjan síðasta mánuð og framkvæmdi lögregla í kjölfarið húsleit á heimili hans.
Að sögn lögreglu er maðurinn búsettur á Suðurnesjum og hefur haft nokkur börn í fóstri. Rannsóknin beinist að þessu stigi að meintum brotum gegn einu barni.
Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins.