Á fjórða hundrað manns gæddu sér á kótilettum á kótilettukvöldi Samhjálpar í kvöld, það hefur verið haldið í 20 ár og er mikilvæg fjáröflunarleið fyrir samtökin.
Byrjað var að huga að eldamennskunni snemma dags. Félagar í Klúbbi matreiðslumeistara sjá um matseldina, en klúbburinn hefur eldað kótilettur í sjálfboðastarfi fyrir Samhjálp undanfarin ár.
„Þetta eru, eftir því sem mér skilst, um 4.000 kótilettur,“ segir Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumanna og einn þeirra sem komu að matseldinni.
„Um 160 kíló. 25 kíló af smjöri. Og ætli það sé ekki annað eins af olíu sem við notum til að steikja þetta.“
Ekki að steikja kótilettur í fyrsta skipti
Og kokkarnir eru reynslumiklir. „Það eru menn á áttræðis- og níræðisaldri sem eru að steikja kótilettur og ekki í fyrsta skipti.
Það er virkilega skemmtilegt að sjá eldri kynslóðirnar og þá yngri koma saman og stundum taka þeir enn þá yngri en okkur sem erum akkúrat hérna núna í smá læri.“
Stökk að utan, mjúk að innan
Spurður hvernig góð kótiletta sé svarar Þórir: „Þetta snýst um það: að hún sé stökk að utan og mjúk að innan. Það sé nægjanlegt smjör og rétt krydduð. Og þá er þetta bara alltaf herramannsmatur. Það er fátt sem toppar góða kótilettu.“
Hlýjan og kærleikurinn það sem skiptir mestu máli
Kótilettukvöldið var haldið á Hilton Reykjavík hótelinu og Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar segir að hlýjan og kærleikurinn sem fylgir viðburðinum sé það sem skipti mestu máli.
Forsetinn ætlar að gerast fastagestur
Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands var meðal gesta. Hún sagðist vera að mæta í fyrsta skipti, Björn eiginmaður hennar hafi mætt í fyrra en þá var hún erlendis og komst ekki.
„En ég verð það héðan í frá,“ svaraði forsetinn spurð hvort hún væri fastagestur á kótilettukvöldum.
„Kótilettur í raspi með rabarbarasultu. Þessu missir maður ekki af,“ sagði Halla.