Nayib Bukele, forseti El Salvador, deildi á X færslu Íslendingsins Ara Vestmars Ýmissonar þar sem hann hrósaði forsetanum og þeirri uppbyggingu sem nú á sér stað í landinu.
Ari deildi myndbandi frá viðburði þar sem Bukele kynnti umfangsmikla fjárfestingu stjórnvalda í menntun ungs fólks.
„Ég verð örsjaldan öfundssjúkur. En ertu ekki að grínast hvað El Salvador er heppið að fá leiðtoga sem setur framtíð lands síns í fyrsta sæti. Ekki bara landið, heldur ungu kynslóðina,“ skrifaði Ari.
„El Salvador verður líklega eitt eftirsóttasta land Suður-Ameríku eftir 10 ár. Magnaðir hlutir að gerast.“
Í kommenti undir færslunni eru margir sem þakka honum fyrir þó svo að einn minni hann á að El Salvador sé í Mið-Ameríku.
Bukele tók eftir íslensku færslunni og endurbirti hana á eigin reikningi.
Fimmtíu þúsund námsstyrkir
Myndbandið var tekið á viðburði sem Bukele hélt á sunnudag á leikvangi í höfuðborginni San Salvador. Þar komu saman um 30 þúsund ungmenni.
Forsetinn tilkynnti að stjórnvöld myndu úthluta 50 þúsund námsstyrkjum til ungs fólks á árinu. Styrkirnir ná meðal annars til háskólanáms, tæknináms og starfsmiðaðs náms.
Nemendur geta stundað námið á staðnum, í blönduðu námi eða fjarnámi. Einnig verða í boði námsleiðir tengdar erlendum skólum.
Bukele sagði styrkina 50 þúsund aðeins vera úthlutun ársins 2026 og að fleiri námsstyrkir yrðu veittir á næstu árum.

Ég verð örsjaldan öfundssjúkur
En ertu ekki að grínast hvað El Salvador er heppið að fá leiðtoga sem setur framtíð lands síns í fyrsta sæti
Ekki bara landið, heldur ungu kynslóðina.
El Salvador verður líklega eitt eftirsóttasta land Suður-Ameríku eftir 10 ár. Magnaðir hlutir… https://t.co/VnjEAqGI0n
— Ari Vestmar Ýmisson (@AriYmisson) August 26, 2026