„Forsendur kjarasamninga eru brostnar. Samningarnir voru gerðir eftir forskrift Seðlabankans á grunni hugmyndafræði um að laun séu helsti áhrifaþáttur verðbólgunnar og sé samið um lágar hækkanir gangi verðbólga niður og þá sé hægt að lækka stýrivexti,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í færslu á Facebook.
„Þessi hugmyndafræði hefur endanlega beðið skipbrot. Verðbólga er næstum heilu prósentustigi yfir viðmiði forsenduákvæðisins og hún er á breiðum grunni, næstum allt hefur hækkað. Hávaxtastefna Seðlabankans hefur varað í næstum fjögur ár.“
Næstu ákvarðanir þurfi að taka á grunni gagna og raunveruleikans – ekki hugmyndafræði. VR ætli að senda frá sér nánari greiningu á ársverðbólgunni og forsendubresti kjarasamninga.
„Við höfum fram til 8. október til að ákveða hvort við segjum upp kjarasamningum. Vonandi er andvaraleysið á undanhaldi.
Ragnhildur Helgadóttir fréttamaður ræddi við Finnbjörn Hermannsson, forseta Alþýðusambandsins, nokkrum mínútum eftir að Hagstofan birti verðbólgumælingu sína.
Forseti ASÍ segir verkalýðshreyfinguna þurfa raunveruleg loforð frá Samtökum atvinnulífsins og hinu opinbera til að ná niður verðbólgu.
„Ekki bara einhver vilyrði og „leitast skal við“ og „af fremsta megni“ eins og þau virðast hafa haldið að síðasta loforð var,“ segir Finnbjörn Hermannsson.
Miðað við tölurnar eru forsendur kjarasamninganna brostnar en forsendunefnd þarf formlega að gefa það út. „Sú nefnd kemur saman á mánudaginn og þá munum við ákveða viðbrögð við því.“
ASÍ, SA og hið opinbera hafa átt í viðræðum til að koma í veg fyrir að segja þurfi upp kjarasamningum og hafa til 8. október til að bregðast við.
„Í sjálfu sér þurfum við ekkert að nýta allan þann tíma. Við erum náttúrlega búin að vera í viðræðum – bæði við Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld frá því snemma í sumar, því það var ljóst að það stefndi í þetta,“ segir Finnbjörn.
Það kemur svo sem engum á óvart en við það að verðbólga mældist 5,6 prósent í ágúst brustu forsendur kjarasamninga frá 2024.
Í samningum var ákvæði um að ef verðbólga væri meiri en 4,7 prósent í ágúst væri hægt að segja þeim upp. Það gerist þó ekki sjálfkrafa. Aðilar vinnumarkaðarins verða að taka afstöðu til forsendnanna í næsta mánuði og meta framhaldið. Þeir geta ákveðið viðbrögð til að láta samninginn gilda eða sagt honum upp.
Verði kjarasamningum sagt upp falla þeir úr gildi 31. október.
Verðbólgan var 5,6 prósent í ágúst samkvæmt mælingu Hagstofunnar. Það er mesta verðbólga sem mælst hefur síðan í ágúst 2024. Verðbólga hefur verið yfir fimm prósentum allt þetta ár.
Meðal þess sem hefur áhrif til aukinnar verðbólgu er að fataverð hefur hækkað eftir að útsölum lauk og kostnaður fólks vegna húsnæðis hefur aukist. Flugfargjöld lækkuðu þó milli mánaða eftir að hafa hækkað mikið í júlí.
Skráningargjald í opinberum háskólum hækkaði úr 75 þúsund í 100 þúsund krónur og það leiddi til 0,07 prósenta hækkunar neysluverðsvísitölunnar. Þetta er í fyrsta skipti í tólf ár sem skráningargjaldið hækkar.
Verðbólga hefur verið yfir fimm prósentum allt þetta ár. Síðustu ár hefur verðbólga mest farið í 10,2 prósent í febrúar 2023 og minnst mælst 3,7 prósent í nóvember í fyrra.
Rúmlega fimm prósenta verðbólga er langt yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Stefna hans gengur út á að verðbólga sé sem næst 2,5 prósentum.
Stjórnvöld lækkuðu virðisaukaskatt á eldsneyti til að draga úr áhrifum hækkana eftir að stríð Bandaríkjanna og Ísraels við Íran hófst fyrr á þessu ári. Það dugði ekki til að halda verðbólgunni undir þeim mörkum sem virkja endurskoðunarákvæði kjarasamninga.
Góðan dag og velkomin á fréttavakt um verðbólgu í ágúst og áhrif hennar á kjaramál.
Hagstofan greinir frá því klukkan níu hversu mikil verðbólgan var í ágúst. Þegar gengið var frá kjarasamningum í febrúar 2024 var ákvæði um að hægt væri að segja þeim upp ef verðbólgan mældist yfir 4,7 prósentum í þessari verðbólgumælingu. Lengi hefur legið fyrir að svo yrði.
Verðbólgan var 5,3 prósent í síðasta mánuði. Landsbankinn spáir því að verðbólga hafi aukist í ágúst og verði 5,5 prósent, Íslandsbanki spáir aðeins meiri verðbólgu, 5,6 prósentum.
Ég heiti Brynjólfur Þór Guðmundsson og fylgi ykkur inn í daginn.