Verð á matvöru á Íslandi er 55 prósent meira að meðaltali en annars staðar í Evrópu. Fyrir utan Sviss er hér dýrast að kaupa í matinn segir í yfirstandandi athugun Samkeppniseftirlitsins á dagvörumarkaði. Mjólkurvörur er 90 prósentum yfir meðaltalsverði og kjötvörur 74 prósentum.
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir verð hafa hækkað mjög mikið.
„Það hefur dunið svolítið á okkur þessi áróður um að það sé bara út af launahækkunum. Og það er ekki rétt. Iðulega eru það launahækkanir sem elta verðhækkanir en ekki öfugt.“
Forsendur bresta ef neysluvísitalan í ágúst verður ekki undir 4,7 prósentum.
„Mér finnst staðan frekar þung,“ segir Halla.
„Við horfum á það að forsendur kjarasamninga eru að fara að bresta í haust að öllum líkindum til og við í verkalýðshreyfingunni stöndum frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort við að ætlum að segja þeim upp eða ekki.“
Verðbólgumarkmið í forgangi
Verðbólgan á árinu verður 5,2 prósent segir sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í árlegri úttekt sinni sem hún kynnti í dag. Það verður ekki fyrr en í byrjun árs 2028 sem hún nálgast tveggja og hálfs prósents verðbólgumarkmið Seðlabankans.
Stjórnvöldum hefur tekist, að mati nefndarinnar, að herða taumhald á hagstjórn til að bregðast við aukinni eftirspurn í þjóðfélaginu.
Samt sem áður hafi laun, verðbólga og verðbólguvæntingar aukist. Þess vegna verða stjórnvöld að setja tvennt í forgang, segir Metodij Hadzi-Vaskov formaður nefndarinnar.
„Að ná verðbólgumarkmiðunum og efla viðnámsþróttinn frekar með því að auka svigrúm í fjármálum og vinna að kerfisbreytingum.“
Hafa ekki séð nein spil
Viðræður eru í gangi milli stjórnvalda, stéttarfélaga og fyrirtækja um yfirvofandi forsendubrest kjarasamninga.
„Það eruð viðræður en við höfum ekki séð á nein spil sem gefa okkur fullvissu um að við munum hafa eitthvað í hendi fyrir haustið.“
Halla segir stóru fyrirtækin hafa verið að skila mjög góðu búi á sama tíma og fólk glími við verðbólgu. Ríkið hafi reyndar sett verðþak á olíu í sumar en sveitarfélögin hafi hækkað gjaldskrár gríðarlega.
„Það sem þarf til að þeir aðilar, sem sögðust ætla að taka þátt í þeirri vegferð að ná verðbólgu niður og þá erum við að horfa á fyrirtækin og hið opinbera, sýni það að þau ætla að axla ábyrgð á þessari stöðu með okkur. Og þau hafa ekki gert það.“
Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar eiga fund með forsætisráðherra á morgun.
„Ég finn ægilega mikinn mun hér“
Fólk sem fréttastofa talaði við í dag sagðist finna fyrir verðhækkunum á matvöru. Kjöt og mólkurvörur hefðu hækkað mest.
„Ég er búinn að vera langdvölum erlendis og ég finn ægilegan mikinn mun hér og niðri í Evrópu. Verulega mikill,“ segir Halldór Holt á Akureyri.
Hvaða vara er það helst sem þig bregður við að sjá verðið hér heima?
„Ég myndi segja kjöt á grillið. Það kostar heilan haug núna. Og mjólkurvörur. Þær eru mjög dýrar.“