Greint hefur verið frá því að stjórnin hafi gert samkomulag við Pétur um uppsögn og lok ráðningarsambands eftir að ábendingar bárust er vörðuðu fjárreiður félagsins.
Málið er komið á borð lögreglu.
Sveinn vildi ekki tjá sig um það hvers eðlis meint brot væru. Hvorki hann né aðrir heimildarmenn sem fréttastofa ræddi við vildu svara því beint út hvort um fjárdrátt væri að ræða.
Tveir bentu hins vegar á að það segði sína sögu að málið væri komið til lögreglu.
Allir voru sammála um að málið hefði komið á óvart, þar sem Pétur væri ekki þekktur fyrir annað en að vera traustur slökkviliðsstjóri og ötull talsmaður brunavarna.