Lögreglan í Póllandi hefur staðfest að fólkið sem fannst látið á heimili byssumannsins sem stóð að skotárásinni á aðaltorginu í Kraká í gær voru foreldrar hans og systir hans, sem var 21 árs.
Að sögn lögreglu voru áverkar á líkunum í fyrstu metnir sem skotsár.
Tveggja daga þjóðarsorg
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, greindi frá líkfundinum á blaðamannafundi í gærkvöld. Tusk sagði árásina hryðjuverk og að Pólverjar hefðu ekki áður orðið fyrir jafn alvarlegri árás áður. Tveggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í landinu.
Þrjú fórnarlömb árásarmannsins sem hann skaut á torginu eru Pólverjar, einn Breti og ekki hefur verið greint frá þjóðernum hinna tveggja. Fimm hinna særðu eru erlendir ríkisborgarar frá Austurríki, Bretlandi, Þýskalandi, Portúgal og Rússland.
Árásarmaðurinn er tuttugu og fimm ára pólskur ríkisborgari. Hann ók inn á torgið og hóf skothríð á fólk af handahófi. Lögregla skaut manninn skömmu síðar og liggur hann nú á sjúkrahúsi og er ástand hans alvarlegt.
Marcin Kierwiński innanríkisráðherra Póllands sagði að skjót viðbrögð lögreglunnar hefðu komið í veg fyrir frekara manntjón en lögreglan hefði skotið á manninn þremur mínútum efitr að tilkynning barst um árásina.
Innanríkisráðherrann sagði vísbendingar um að árásarmaðurinn hafi aðhyllst öfgahægrisinnaða hugmyndafræði, en það hafi ekki verið staðfest.