Læknafélag Reykjavíkur telur ummæli forstjóra Landspítala og stjórnar Landspítala í greinum í Spítalapúlsi, fréttum og grein í Morgunblaðinu, um hlutavinnu sérfræðilækna afar ámælisverð.
Ályktun þess efnis var samþykkt á fjölmennum aðalfundi félagsins sem fram fór í Hlíðasmára 8 í gær, 27. maí 2026, en þar var jafnframt kjörin ný stjórn félagsins.
Í aðsendri grein í Morgunblaðinu á fimmtudaginn var, sem vísað er í í ályktun Læknafélags Reykjavíkur, er áhrifum hlutastarfa starfsmanna spítalans á starfsemi hans lýst með miður jákvæðum hætti, en um 55% sérfræðilækna á Landspítala eru í hlutastarfi þar.
Telja ummælin órökstudd
Í hinum ámælisverðu greinum staðhæfa forstjóri og stjórn spítalans að hlutastörf sérfræðilækna vegi að grunnstoðum háskólasjúkrahússins og skapi stjórnunarvanda, auki kostnað, valdi lakari þjónustu og séu ógn við öryggi skjólstæðinga spítalans, að því er segir í ályktuninni.
Ummælin telja félagsmenn órökstudd og ámælisverð.
„Aðalfundur Læknafélags Reykjavíkur fordæmir þessi órökstuddu ummæli forstjóra og stjórnar Landspítala,“ segir í niðurlagi ályktunarinnar.
Ragnar Freyr endurkjörinn formaður
Á fundinum var Ragnar Freyr Ingvarsson gigtlæknir jafnframt endurkjörinn formaður félagsins til næstu tveggja ára, en honum var sagt upp hlutastarfi sínu hjá Landspítala í síðasta mánuði með hætti sem hann álítur ólögmætan.
Önnur í stjórn félagsins næsta starfsárið eru: Emil Árni Vilbergsson gjaldkeri, Tryggvi Helgason ritari, Katrín Ragna Kemp og Ýr Frisbæk. Í varastjórn eru Helgi Davíð Björnsson, Hjálmar Þorsteinsson og Þórarinn Guðnason.
