Umboðsmaður Alþingis hefur vísað frá kvörtun einstaklings yfir því að Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hafi ekki sett tvö nýyrði sem hann sendi stofnuninni inn á nýyrðavef hennar og heldur ekki í íslenska orðabók.
Kvörtunin var lögð fram fyrr í þessum mánuði og sneri að því að nýyrðum þeim sem viðkomandi sendi inn á nýyrðavef Árnastofnunar, nánar til tekið „dópréttindi“ og „dópréttindasinni“, hafi verið hafnað. Taldi kvartandinn þetta fela í sér ólögmæta mismunun og krafðist þess meðal annars að nýyrðið „dópréttindi“ yrði fært inn á nýyrðavefinn og í íslenska orðabók.
Umboðsmaður tekur fram í bréfi til viðkomandi að samkvæmt lögum sé það hlutverk embættisins að hafa eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á þann hátt, sem nánar greini í lögum, og að tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Hver sá sem telji sig hafa verið beittan ranglæti af hálfu stjórnvalda geti kvartað af því tilefni til umboðsmanns. Það sé því ekki hlutverk umboðsmanns að láta mönnum í té lögfræðilegar álitsgerðir eða svara almennum spurningum um tiltekin málefni eða réttarsvið heldur að fjalla um kvartanir yfir því að stjórnvöld hafi ekki farið að lögum eða fylgt vönduðum stjórnsýsluháttum með ákvörðunum sínum, athöfnum eða athafnaleysi. Þá verði kvörtun að lúta að tilteknum athöfnum eða ákvörðunum stjórnvalds, sem beinist að þeim er leggi kvörtun fram og varði beinlínis hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra.
Tjáir umboðsmaður kvartandanum að þótt hann hafi lagt til nýyrði til birtingar á nýyrðavef Stofnunar Árna Magnússonar og þær tillögur hafi ekki orðið til þess að umrædd nýyrði yrðu birt liggi ekki fyrir í málinu tiltekin ákvörðun eða athöfn stjórnvalds sem varði hans hagsmuni sérstaklega umfram hagsmuni annarra. Af þeim sökum sé skilyrðum laga fyrir því að kvörtunin verði tekin til frekari meðferðar ekki fullnægt.
Með vísan til þessa lýkur umboðsmaður meðferð sinni á málinu.