Hjólið var af gerðinni Honda Goldwing og fellur undir flokk fornhjóla en það var árgerð 1988. Þegar eldurinn kom upp var Ómar á leið til baka frá Akureyri en þangað lagði hann leið sínu til þess að fara með hjólið, sem hann var nýbúinn að kaupa sér, í ástandsskoðun.
Frá þessu greindi hann í færslu á Facebook en grein um atvikið var í kjölfarið birt á vef Tíunnar, sem er klúbbur áhugafólks um bifhjól af öllum gerðum. Í umfjölluninni á tia.is kemur fram að slökkvilið hafi verið kallað á staðinn frá Dalvík og að einnig hafi verið hringt eftir aðstoð í neyðarlínuna en engann sakaði.
„Erfiður dagur í dag, skrapp með 1500 Goldwing í skoðun á Akureyri og rúntaði eitthvað þar, en á heimleiðinni fór hjólið að verða eitthvað öðruvísi en maður á að venjast,“ svona eru upphafsorð færslunnar sem Ómar birti á Facebook.
Gargað að hann væri fífl og asni
Hann lýsir því svo hvernig hann hafi því gert hlé á ferð sinni á Hámundarstaðarhálsi og að í sömu mund afi kona hrópað til hans að það ætti ekki að stoppa ökutæki svona á þjóðveginum.
„Fékk að heyra það að ég væri fífl og asni að stoppa þarna og vera í símanum, geðstyrð kona að garga út um gluggann, en ég hringdi í kunningja þar sem ég var ekki með nein verkfæri meðferðis,“ skrifar hann en á meðan símtalinu stóð hóf að leggja reyk frá hjólinu.
„Myndir sýna rest. En það kom líka fólk og athugaði með mig og þakka ég því fyrir. Ást og friður.“