„Eftirspurnin hjá okkur hefur aldrei verið meiri og sérstaklega eru það svokallaðir Plug and Play hitaveitupottar sem eru vinsælir,“ segir Ari Steinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Heitir pottar.is, þegar hann er spurður út í vinsældir heitra potta á Íslandi.
„Þetta eru pottar sem eru hannaðir til að vera einfaldir í uppsetningu. Það þarf ekki að smíða grind utan um þá, ekki bæta við einangrun eða setja upp niðurfall eða þess háttar. Það er búið að gera alla þessa vinnu fyrir fólk fyrir fram. Hugmyndin er einföld. Þú kemur bara með pottinn heim, smellir honum í garðinn, tengir hann og byrjar að njóta.“
Mikill sparnaður og minna vesen
Ari segir Plug and Play-pottana hafa farið langt fram úr hefðbundnum hitaveituskeljum í sölu hjá fyrirtækinu. „Fólk vill einfaldleika. Það vill ekki standa í miklum framkvæmdum eða óvæntum kostnaði. Með þessum pottum færðu tilbúna lausn þar sem allt er klárt.“
Þá segir Ari að pottarnir séu byggðir á sterkri álgrind sem er bæði endingarbetri og traustari en hefðbundnar timburgrindur sem margir smíða sjálfir utan um skeljar. Plug and Play pottarnir eru líka með viðhaldsfría klæðningu, þrefalda einangrun og eru músheldir,“ segir Ari og bætir við að þreföld einangrun hafi bein áhrif á reksturinn.
„Vel einangraður pottur er ódýrari í rekstri. Hann heldur hitanum betur og notar því minni orku. Viðskiptavinir kunna líka vel að meta að sjá allan kostnaðinn fyrir fram. Þú velur bara hvort þú viljir skel eða Plug and Play pott en flestir fara í Plug and Play í dag, svo bætirðu við pottastýringunni. Þá er allt klárt og pípari sér um uppsetningu. Enginn falinn kostnaður. Þetta er tilbúið kerfi og það eina sem þarf að gera er að setja það upp.“
Pottinum stjórnað í gegnum símaforrit
Það sem hefur þó vakið hvað mesta athygli að undanförnu eru Wi-Fi pottastýringarnar hjá Heitir pottar.is sem gera notendum kleift að stjórna pottinum í gegnum símaforrit.
„Salan á snjallstýringunum hefur aukist gríðarlega hjá okkur en með kerfinu er hægt að fylla og tæma pottinn í gegnum app. Þú getur verið á leiðinni heim úr vinnunni eða upp í bústað og bara kveikt á pottinum í símanum. Þá er hann heitur og klár þegar þú mætir.“
Ari segir þessi miklu þægindi hafa mikil áhrif á notkunina sjálfa. „Maður á aldrei að spara í auknu notkunargildi. Þegar fólk hefur þetta allt í símanum verður miklu auðveldara að nota pottinn.“
Sterkustu pottalok á markaðnum
Heitir pottar.is eru einnig með einstaklega góð pottalok sem Ari segir að skipti miklu máli fyrir bæði hitaeinangrun og endingu.
„Við erum með sterkbyggðustu pottalok á markaðnum. Þau þurfa að þola íslenskt veðurfar, alvöru vind og snjóþunga en lokin eru styrkt með álgrind að innan sem gerir þau mun sterkari en hefðbundin lok. Venjuleg lok eru oft bara með frauðeinangrun en engar styrkingar. Lokin okkar þola tonn af snjóþunga.“
Íslendingar fara í pottinn
Ari talar um að heitir pottar séu orðnir stór hluti af íslenskri menningu og eftirspurnin sé mikil.
„Það er í tísku að vera með smá spa heima hjá sér. Við búum á köldu landi og sækjumst í hitann á annan hátt en margar aðrar þjóðir. Aðrir fara í sólina en við förum í pottinn. Við erum með opið alla daga vikunnar og vinnum langa daga til að anna eftirspurninni,“ segir Ari og bætir við að fyrirtækið hafi séð yfir 60% aukningu milli ára.
„Fólk vill einfaldlega geta komið heim eftir langan dag og farið beint ofan í heitan pott. Það er bara draumurinn.“

