Jón Ingvar Bragason, framkvæmdastjóri Grænna skáta, staðfestir þetta í samtali við Vísi, en DV greindi fyrst frá málinu.
„Hugur okkar hjá viðkomandi og hans fjölskyldu. Þetta var hræðilegt atvik,“ segir Jón Ingvar. Starfmaðurinn mun hafa brennst illa og er þungt haldinn.
Málið er í rannsókn lögreglu. Hildur Rún Björnsdóttir hjá lögreglustöð fjögur, sem rannsakar atvikið, vildi ekki tjá sig um málið.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er ekki talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað.