Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. Lögreglunni barst tilkynning um slysið rétt eftir klukkan ellefu.
Óskað var eftir aðstoð þyrlusveitarinnar og hinum slasaða, sem er karlmaður, ekið á móti þyrlunni. Þyrlan er rétt ókomin á höfuðborgarsvæðið nú rétt fyrir klukkan eitt.
„Ég veit ekki um alvarleika meiðslanna,“ segir Einar.