Síðast var fundað í kjaradeilunni á föstudag. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar og staðan er sögð erfið. Flugmenn eru ekki í formlegu verkfalli en hafa ekki verið tilbúnir til þess að selja félaginu frídaga sína til þess að hægt sé að manna ferðir.
Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa flugmenn lagt fram svokallaða fleytilausn í deilunni, að skapa með skammtímasamningi starfsfrið fyrir sumarvertíðina og leggja stór deiluefni til hliðar. Samkvæmt ríkissáttasemjara hafa slíkar tillögur ekki náð flugi við borðið.