Nútíminn hefur hafið reglulegt samstarf við Aðalheiði Jensen þar sem hún birtir myndbönd um samskipti kynjanna, sambönd og lífið almennt.
Í nýjasta myndbandinu beinir Aðalheiður sjónum að því sem hún kallar græn flögg í samböndum. Hún segir umræðuna oft einkennast af rauðum flöggum, viðvörunarbjöllum og neikvæðum upplifunum, en sjaldnar sé rætt um þá eiginleika sem raunverulega skipta máli í góðum og heilbrigðum samböndum.
Hún fer yfir hvað geti verið merki um traust, öryggi og gagnkvæma virðingu í samskiptum og bendir á að litlu hlutirnir segi oft mest um hvernig samband þróast til lengri tíma. Þá veltir hún einnig upp hvort fólk sé stundum orðið of vant því að leita að neikvæðum merkjum og gleymi að meta það sem actually virkar vel.
Aðalheiður er eigandi Tilveran Barre og yoga stúdíó á Garðatorgi 3. Hún hefur lagt áherslu á að styðja fólk í að bæta lífsgæði sín með hreyfingu, heilsu- og lífsráðgjöf. Fleiri myndbönd frá Aðalheiði verða birt reglulega á Nútímanum þar sem hún heldur áfram að taka fyrir málefni sem tengjast daglegu lífi og samskiptum fólks.
View this post on Instagram