Nútíminn hefur hafið reglulegt samstarf við Aðalheiði Jensen sem mun birta hér myndbönd og efni um samskipti kynjanna, sambönd og lífið almennt.
Í nýjasta myndbandinu veltir Aðalheiður fyrir sér spurningu sem margir hafa líklega staðið frammi fyrir á einhverjum tímapunkti: Er ást það sama og spenna?
Hún ræðir muninn á því að verða ástfanginn og því að elska, og hvers vegna margir rugla þessum tveimur hlutum saman þegar sambönd þróast með tímanum.
Aðalheiður rekur Tilveruna Barre og yoga stúdíó þar sem hún hefur um árabil unnið með fólki að andlegri og líkamlegri vellíðan. Þar býður hún meðal annars upp á námskeið, fyrirlestra og ráðgjöf.
View this post on Instagram