Fleiri en einn eru grunaðir um umfangsmikla kannabisræktun í kjallara húss í Króksfjarðarnesi. Þetta staðfestir lögreglan á Vestfjörðum.
Lögreglan fór strax á staðinn eftir að grunur vaknaði í upphafi síðustu viku og umtalsvert magn af kannabis var gert upptækt.
Maður sem á brotaferil að baki var handtekinn vegna málsins.
Fleiri en einn eru grunaðir í málinu, segir Hlynur Snorrason yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vestfjörðum, við fréttastofu RÚV.