Fjölskyldufaðir úr Kópavogi var hætt kominn eftir að kókaínpakkningar sem hann bar innvortis gáfu sig.
Maðurinn, sem er íslenskur, var nýlega kominn til landsins í síðustu viku eftir dvöl erlendis þegar kalla þurfti á sjúkrabíl.
Að sögn Ævars Pálma Pálmasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur maðurinn litla sem enga sögu um afbrot og engin tengsl við fíkniefnaheiminn til þessa.
Fór í aðgerð
„Lögregla var kölluð að heimahúsi í Kópavogi þar sem alvarlega veikur einstaklingur var, eftir að pakkning sprakk innvortis. Hann þurfti að fara í aðgerð til þess að fjarlægja pakkninguna úr meltingarveginum,“ segir Ævar.
Hann segir ekki gott að segja hve mikið magn maðurinn var með í meltingarveginum í heild sökum þess að fleiri en ein pakkning var sprungin.
Aðspurður segir Ævar manninn á batavegi.
„En hann var mjög hætt kominn og þetta hefði getað farið mjög illa ef lögregla hefði ekki verið kölluð til og honum komið undir læknishendur,“ segir Ævar.
Málið unnið með barnaverndaryfirvöldum
Að sögn Ævars var málið unnið í samvinnu við barnaverndaryfirvöld sökum þess að börn dvelja alla jafna á heimilinu.
„Börnin voru ekki á heimilinu þegar lögregla kom en þau eru búsett þarna,“ segir Ævar Pálmi.
Atvikið er hið þriðja á skömmum tíma þar sem pakkningar fíkniefnasmyglara hafa rofnað innvortis.
Í síðustu viku var t.a.m. sagt frá erlendri konu sem missti meðvitund eftir að fíkniefnapakkning gaf sig.
