Fjölgun ungs fólks á leigumarkaði gæti verið merki um stækkandi leigumarkað, segir yfirhagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Hlutfall fólks á aldrinum 18 til 24 ára lækkaði um 10 prósentustig milli ára, samkvæmt nýrri búsetumælingu HMS.
Á sama tíma hækkaði hlutfall fólks í þessum aldurshópi á leigumarkaði úr 34% í 45%. Um 29% alls fullorðins fólks er á leigumarkaði, samanborið við 28% í fyrra.
Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), segir færslu ungs fólks úr foreldrahúsum í leiguhúsnæði síðastliðið ár vera í hærra lagi.
Í fyrra hafi rannsóknaraðferðum verið breytt þar sem reynt var að ná til fleira fólks. Sömu aðferð var beitt í ár.
„Þetta er í annað skipti sem við notum þessa sömu mæliaðferð og hún sýnir einhverja breytingu þannig að þetta er einhver vísbending um það að leigumarkaðurinn hafi stækkað og við sjáum þessa breytingu.“
Kólnandi fasteignamarkaður hluti af útskýringunni
Jónas hefur skýringu á breytingunni ekki á reiðum höndum en setur hana í samhengi við kólnandi fasteigna- og byggingamarkað.
„Aðstæður til húsnæðiskaupa eru erfiðar og það getur útskýrt það af hverju leigumarkaðurinn er að stækka samkvæmt okkar mælingum en af hverju fólk er að flytja úr foreldrahúsum og á leigumarkaðinn er önnur spurning.“
Í tilkynningu frá HMS í morgun kemur fram að vísitala íbúðaverðs hafi hækkað um 0,09% milli mánaða í júní.
Árshækkun vísitölunnar nemur 1,80%, sem er næstminnsta árshækkun íbúðaverðs frá 2011. Í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu er árshækkun íbúðaverðs undir einu prósenti en það lækkaði um 1,17% milli mánaða.
„Dramatísk langtímaleitni“
Jónas segir hlutfall yngsta aldurshópsins á leigumarkaði vera í hærra lagi miðað við fyrri mælingar.
„Það er því rík ástæða til þess að athuga í næstu könnunum hvort um sé að ræða varanlega breytingu á búsetuhögum ungs fólks.“
Milli ára hafi hlutfall fólks á leigumarkaði almennt ekki tekið miklum breytingum en að leitnin hafi verið upp á við samhliða því sem margir hafa flust til landsins og ekki komist inn á fasteignamarkað.
„Langtímaleitnin er nokkuð dramatísk þrátt fyrir að skammtímasveiflurnar séu ekki rosalega miklar.“
Í byrjun 2016 var skráning húsaleigusamninga gerð lögskyld. Jónas telur þá breytingu ekki hafa áhrif á hegðun fólks á leigumarkaði. Það komi á óvart að HMS hafi ekki enn séð mikla breytingu á skráningu leigusamninga þrátt fyrir lagabreytinguna.
„Hvort að skráningarskyldan muni breyta hegðun leigusala á eftir að koma í ljós en við teljum allavega að skráningarskyldan hafi ekki breytt hegðun leigjenda,“ segir Jónas.