Fjölda starfsmanna hjá Rapyd á Íslandi var í dag sagt upp störfum.
Vísir greindi fyrst frá og segir að alls hafi um fjörutíu manns verið sagt upp.
Garðar Stefánsson, forstjóri Rapyd, vildi í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is ekki staðfesta hve mörgum hefði verið sagt upp en sagði um að ræða skipulagsbreytingar hjá Rapyd á alþjóðavísu.
120 starfsmenn áfram
Segir Garðar að Rapyd verði, samhliða alþjóðlegum framförum í gervigreind og sjálfvirknivæðingu, áfram skuldbundið íslenska markaðnum.
„Á Íslandi erum við með einstaklega öflugan hóp, rúmlega 120 starfsmenn, sem munu áfram stýra, byggja upp og þróa nýjar fjártæknilausnir fyrir okkar mikilvægu innlendu viðskiptavini sem og þau alþjóðlegu fyrirtæki sem við þjónustum,“ segir í svari forstjórans.
Segir Garðar að viðskiptavinir Rapyd muni njóta góðs af nýjum lausnum, hraðari innleiðingu og meira rekstraröryggi undir nýju og nútímavæddu rekstrarlíkani.
Hyggst Garðar ekki tjá sig frekar um uppsagnirnar að svo stöddu.
Fundur í næstu viku
Arik Shtilman, forstjóri Rapyd á heimsvísu, sendi öllum starfsmönnum fyrirtækisins bréf í dag þar sem hann segir að rekja megi skipulagsbreytingarnar til þess að Rapyd sé nú fyrirtæki sem rekið sé af gervigreind.
Hann segir það ekki markmið fyrirtækisins að innleiða gervigreind í auknum mæli, heldur það sé það einfaldlega raunveruleikinn sem lifa þurfi með.
Hefur Shtilman boðað alla starfsmenn Rapyd á heimsvísu til fundar þann 2. júní þar sem næstu skref verða rædd.
