Davíð Arnar Stefánsson, varaformaður Landverndar, segir gagnrýni Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hafa komið á óvart.
Ráðherra sakaði Landvernd um upplýsingaóreiðu og að grafa undan trausti til stofnana eftir að samtökin gagnrýndu nýlegar lagabreytingar um jarðboranir í kjölfar mengunar í Varmá sem varð af borframkvæmdum í Skammadal.
Davíð segir hart af ráðherra að væna náttúruverndarsamtök um upplýsingaóreiðu. Upplýsingaóreiða vinni aldrei með málstað náttúruverndar.
Ekkert samhengi milli mengunar og lagabreytinga
Ráðherra segir ekkert samhengi milli mengunarinnar og lagabreytinganna. Borframkvæmdir sem ollu menguninni hafi farið fram á grundvelli leyfa sem voru gefin út áður en lagabreytingar voru samþykktar.
„Eftir sem áður þá er borað eftir að reglugerðarbreytingin er gengin í gegn og í samræmi við breytingarnar. Þannig að afleiðingar breytingarinnar koma í ljós strax þarna,“ segir Davíð í samtali við fréttastofu.
„Breytingarnar fela í sér meðal annars það að eftirlit færist af borframkvæmdinni sjálfri og yfir á borinn sem slíkan og framkvæmdaraðilann.“
Þannig sé í raun enginn óháður aðili sem taki framkvæmdina út áður en hún hefjist heldur sé það framkvæmdaraðilanum sem beri skylda að tilkynna óhöpp eftir að þau gerist.
Nauðsynlegt að tryggja eftirlit
Þetta sé gert til þess að einfalda regluverk og hraða framkvæmdum í samræmi við stefnu stjórnvalda, sem geti verið jákvætt.
„En við þurfum að tryggja það að þegar ráðast á í svona stórt verkefni, eins og til stendur á næstu mánuðum og árum, að þá sé eftirlit og gæði framkvæmdanna fyrsta flokks og í samræmi við bestu mögulega þekkingu,“ segir Davíð.
Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna hafa séð um eftirlit framkvæmda en þau verða lögð niður um næstu áramót. Davíð segir Umhverfis- og orkustofnun ekki tilbúna til að taka við þessu hlutverki. Hann segir starfsfólk Heilbrigðiseftirlitsins víðs vegar um landið hafa varað við breytingunum, með þeim sé verið að veikja eftirlit með borframkvæmdum.