„Ég var að vonast eftir meiri lækkun en raun bar vitni,“ segir Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, er hann var spurður út í hans fyrstu viðbrögð við nýjustu verðbólgutölunum sem birtar voru í dag.
Hann segir nýju tölurnar áhyggjuefni og upplifir samtökin ein á báti í verðbólgubaráttunni.
„Þetta segir okkur að það er í raun enginn að taka á því með okkur að reyna að ná niður verðbólgunni. Það virðast allir frekar vera að bæta í,“ segir hann og bætir við að miðað við umfang maímánaðar hafi hann reiknað með lægri verðbólgu en raungerðist.
Enn hægt að grípa til aðgerða
Finnbjörn segir að enn sé hægt að grípa til aðgerða með von um að sporna við svartri birtingarmynd á vinnumarkaði í haust, en hvort þær aðgerðir dugi geti hann ekki sagt til um.
„Við höfum náttúrulega verið að kalla eftir því að sveitarfélög og fyrirtæki haldi að sér höndum og ríkið líka. Það er hægt að kalla til baka ýmsar hækkanir sem voru settar á núna um áramótin, bæði hjá sveitarfélögum og ríki,“ segir Finnbjörn.