Fyrsta júní verður hálf öld liðin frá því að Bretar viðurkenndu 200 mílna efnahagslögsögu Íslands með undirritun samnings. Halldór Nellett var á þeim tíma háseti um borð í varðskipinu Baldri og Jón Páll Ásgeirsson var 3. stýrimaður.
Þegar ljóst varð að síðasta þorskastríðinu væri endanlega lokið var Halldóri falið að ganga frá togvíraklippum skipsins. Jón Páll mundaði myndavél á þeirri stundu sem Halldór bjó sig undir að ganga frá klippunum.
Hefur sú ljósmynd síðar orðið nokkuð þekkt sem tákn fyrir lok þorskastríðsins og nú, 50 árum síðar, hafa þeir endurskapað augnablikið um borð í varðskipinu Óðni.
Í blaðinu er rætt við þá Halldór og Jón Pál um minningar þeirra frá þessum degi árið 1976 þegar þeir fylgdust með bresku skipunum yfirgefa íslenska landhelgi. Í Bókaklúbbi Spursmála segir Guðni Th. Jóhannesson jafnframt frá væntanlegri bók sinni um áratuginn sem leið á milli tveggja seinni þorskastríða.
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu og Moggaappinu í dag á blaðsíðum 17, 18, 19 og 23.