Mikil reiði hefur nú gripið um sig í Róm á Ítalíu eftir að 32 ára kona var numin á brott og haldið fanginni í yfirgefinni byggingu þar sem hún segir fimm menn hafa ítrekað nauðgað sér í þrjá sólarhringa.
Konan hafði komið til Rómar þann 9. maí í frí. Tíu dögum síðar fór hún ein út að borða í miðborginni. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum var hún stödd fyrir utan veitingastaðinn þegar maður nálgaðist hana og bauðst til að selja henni hass.
Hún fylgdi manninum eftir og eftir um hálftíma göngu komu þau að sendibifreið þar sem annar maður beið. Þar segist hún hafa verið neydd inn í bifreiðina og flutt í yfirgefna byggingu.
Nauðgað ítrekað og hótað lífláti
Að sögn lögreglu var konunni haldið fanginni í byggingunni í 72 klukkustundir. Á þeim tíma segir hún að fimm menn hafi ítrekað nauðgað sér, gefið sér fíkniefni og hótað að drepa hana.
Jafnframt rændu þeir farsíma hennar og veski.
Eftir þrjá sólarhringa tókst henni loks að komast undan. Ítalskur ökumaður fann hana hálfnakta og í mjög slæmu ásigkomulagi og flutti hana á sjúkrahús.
Við skoðun kom í ljós að hún var með mikla áverka sem samræmdust kynferðisofbeldi og staðfestu læknar einnig að henni hefði verið gefið fíkniefni. Lögregla var kölluð á vettvang og umfangsmikil rannsókn hófst þegar í stað.
Fimm handteknir
Rannsóknarlögregla í Róm segist hafa náð að rekja ferðir konunnar og bera kennsl á grunaða menn á fáeinum dögum.
Lögregla gerði í kjölfarið áhlaup á bygginguna þar sem konunni var haldið fanginni. Þar fundust alls 22 einstaklingar frá löndum utan Evrópusambandsins sem voru, samkvæmt yfirvöldum í landinu, allir ólöglegir innflytjendur.
Ellefu þeirra var vísað strax úr landi og voru fluttir í varðhald á meðan unnið er að brottflutningi þeirra.
Meðal þeirra voru fimm menn sem konan sagðist þekkja sem gerendur. Um er að ræða tvo menn frá Gambíu, einn frá Malí og tvo frá Nígeríu.
Þeir hafa verið ákærðir fyrir hópnauðgun og hafa yfirvöld staðfest handtöku þeirra.
Rannsaka einnig aðra sem tengjast málinu
Lögregla rannsakar nú einnig þátt annarra einstaklinga í málinu. Þar á meðal eru maðurinn sem lokkaði konuna frá veitingastaðnum, sá sem flutti hana að byggingunni og þeir sem tengjast húsnæðinu þar sem henni var haldið fanginni.
Málið hefur vakið mikla athygli og reiði á Ítalíu, bæði vegna alvarleika brotanna og þess fjölda einstaklinga sem fundust í byggingunni við lögregluaðgerðina.