Að minnsta kosti fimm eru látnir og aðrir fimm slasaðir eftir að flutningaflugvél tæknirisans Amazon fór út af enda flugbrautar í lendingu á alþjóðaflugvellinum í Miami í kvöld. Flugvélin rakst á nokkur farartæki á vegi í nágrenni flugvallarins.
Rannsókn stendur enn yfir á vettvangi en samkvæmt Rosie Cordero-Stutz, lögreglustjóra í Miami, er almenningur ekki í hættu.
Slysið varð klukkan tvö síðdegis á staðartíma, eða klukkan 18 á íslenskum tíma. Tildrög þess liggja ekki fyrir. Samkvæmt gögnum CNN lýstu flugmenn ekki yfir neyðartilfelli fyrir lendingu.
Miklar tafir hafa orðið á flugferðum í kjölfar slyssins en helgin er ein stærsta ferðahelgi ársins vestanhafs.