Fimm karlar voru í dag úrskurðaðir í tíu daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innflutningi fíkniefna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.
Handtökurnar voru framkvæmdar í Reykjavík og Hveragerði, en málið varðar töluvert magn af sterkum fíkniefnum. Rannsókn málsins hefur verið unnin í samstarfi nokkurra lögregluembætta, auk Tollgæslunnar.
Lögreglan vill ekki veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.