Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur til þriðjudagsins níunda júní á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að því er fram kemur í tilkynningu.
Þar er einnig greint frá því að málið varði töluvert magn af sterkum fíkniefnum og að handtökur hafi farið fram í Reykjavík og Hveragerði. Málið sé enn í rannsókn og að það sé unnið í samstarfi nokkurra lögregluembætta, auk Tollgæslunnar.
Fréttin er í vinnslu.