Þrjár manneskjur sem fengu hornhimnu gjöf úr látnum manni smituðust af hundaæði. Einnig nýrnaþegi sem lést.
Tímaritið People greinir frá þessu.
Eftir að 59 ára maður að nafni James Martin, frá Idaho fylki, lést í desember árið 2024 voru líffærin úr honum gefin eins og óskað hafði verið eftir. Fjölskyldan taldi að hann hefði látist úr hjartabilun en hið sanna var að hann var með hundaæði.
Núna er talið að James hafi smitast af skunki sem réðist á kettlinga í garðinum hjá honum. James varði kettlingana en skunkurinn náði að klóra hann. Sú tegund af hundaæðisveiru sem James var með finnst yfirleitt í ákveðinni tegund leðurblaka og er því talið að skunkurinn hafi áður étið leðurblöku.
Eiginkona James skrifaði í líffæragjafaskýrsluna að hann hefði nýlega verið klóraður af skunki en engu að síður voru líffærin úr honum gefin.
Nýrnaþeginn lést
Nýrað var sent til 76 ára manns í Ohio, Barney Kurowicki að nafni. Barney fór fljótlega að finna fyrir einkennum eftir líffæragjöfina, svo sem almenn veiklun, skjálfti og hræðslu við vatn. Allt eru þetta þekkt einkenni hundaæðis. Barney er nú látinn.

Eftir greininunga var farið að rannsaka hvert líffæri James hefðu farið og kom þá í ljós að þrír líffæraþegar hefðu þegið hornhimnu úr honum.
Var ákveðið að láta sjúklinga strax vita og gefa þeim bóluefni gegn hundaæði. Sem og að eyða öðrum vefjum sem til voru úr James en fjórða hornhimnuaðgerðin var þegar skipulögð. Var það læknir James sem lét þeganna vita.
„Ég get ímyndað mér samtalið sem hann þurfti að eiga við sjúklingana og fjölskyldurnar, hversu stressandi þetta hefur verið,“ segir Christine Hahn, smitsjúkdómalæknir Idaho fylkis.
Ekki hefur verið greint frá nöfnum fólksins sem fékk hornhimnurnar. En greint hefur verið frá því að enginn þeirra hefur sýnt einkenni enn sem komið er.