Farþegi réðst á leigubílstjóra í Reykjavík á mánudagskvöld og stakk hann með hnífi. Hlúa þurfti að leigubílstjóranum á sjúkrahúsi eftir árásina.
Bylgja Hrönn Haraldsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu, segir leigubílstjórann hafa ekið þeim sem grunaður er um árásina í Austurbæ Reykjavíkur. Hvorki er talið að mennirnir hafi þekkst né að þeir hafi átt í deilum fyrir árásina.
Bylgja segir árásina alvarlega en leigubílstjórinn hafi verið útskrifaður af sjúkrahúsi og honum heilsist ágætlega. Spurð hvort sá grunaði sé í gæsluvarðhaldi segir Bylgja hann vistaðan á viðeigandi stofnun.
Árásin er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.