Mörgum býður við því að sjá tær annarra, hvað þá þegar þær birtast óumbeðnar í lokuðu rými um borð í farþegaflugvél – jafnvel í næsta sæti.
Farþegi einn hefur sætt harðri gagnrýni á samfélagsmiðlum eftir að hafa verið myndaður við athæfi sem margir myndu telja ósmekklegt og óviðeigandi. Var hann staðinn að því að tína dauða húð af berum fótum sínum um borð í vélinni.
Atvikið vakti mikla athygli eftir að samferðamaður birti færslu á samfélagsmiðlinum Reddit þar sem hann lýsti hegðun farþegans, konu í þessu tilviki, sem sat við hlið hans.
Með færslunni fylgdi mynd sem sýndi konuna með annan fótinn uppi á hnénu á sér á meðan hún fletti af dauðri húð með höndunum.
Færslan vakti sterk viðbrögð og hundruð athugasemda. Margir lýstu viðbjóði sínum á hegðuninni og töldu hana ósmekklega.
„Sumu fólk ætti einfaldlega að vera bannað að fljúga, ævilangt helst,“ skrifaði einn notandi, á meðan annar spurði hvers vegna fólk teldi slíkt athæfi við hæfi á almannafæri utan veggja heimilisins.
Nokkrir notendur lögðu jafnframt til að kalla ætti til flugfreyjur eða flugþjóna í svona uppákomum. Aðrir sögðu að farþeginn ætti að láta viðkomandi vita með kurteisislegum hætti að hegðunin væri óviðeigandi.
