Farþegaflugvél Icelandair varð að lenda á Boston-flugvelli í dag af öryggisástæðum. Flugvélin var á leið frá Nashville í Bandaríkjunum til Íslands. Flestum farþegum hafa þegar verið fundnar nýjar flugferðir á komustað.
Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, staðfestir þetta. Flugvélin er af gerðinni Boeing 737 Max.
„Það kemur upp melding og samkvæmt verklagi var ákveðið af öryggisstæðum að lenda í Boston,“ segir Guðni. „Melding um tæknilegt atriði sem þarf að líta á.“
Hann hefur ekki frekari upplýsingar um hvers kyns tæknilegt atriði um ræðir.
„Þau voru nálægt Boston-flugvelli. Þetta var svona næsti flugvöllur til að lenda á þar sem við erum með starfsemi og þjónustu.“
Farþegum sem voru á leið til Evrópu með millilendingu á Íslandi hafa verið fundnar nýjar flugferðir í dag, í flestum tilfellum beint á áfangastað.
„Hluti farþeganna sem var á leiðinni til Íslands skilst mér að sé kominn með nýja flugmiða frá Boston núna á eftir og muni lenda í fyrramálið, sólarhring síðar en áætlað var,“ segir Guðni.
Gert verður við flugvélina og hún flutt aftur til Íslands.