Reyndar sjá farþegar bara hluta starfsmanna öryggisleitar. Í rými baka til situr hópur fólks við tölvuskjái að skoða innihaldið í töskunum.
-En hverju er helst verið að leita að?
„Bara einhverju sem ógnar fluginu sjálfu. Sprengjum og hættulegum efnum, vopnum,“ svarar Reimar.
Starfsmennirnir í bakrýminu fylgjast einnig með stóru töskunum sem farþegar innrituðu en þær eru gegnumlýstar á færiböndunum.
-En hvað er það sem farþegar helst klikka á að reyna að koma í gegnum öryggisleitina?
„Vökvi til dæmis, sem er yfir 100 millilítra. Hann má ekki fara í gegn hérna. Hnífar og verkfæri sem eru of stór eða of beitt til að fara í gegn.“
Hluti farþega lendir í úrtaksleit og þá er þreifað á fólki. Er fólk ekki viðkvæmt fyrir því?„Nei, nei. Flestir taka þátt og taka vel í þetta. Sumir skilja þetta ekki en það er bara partur af þessu,“ svarar Reimar.
Það á raunar enginn hlutur að sleppa inn án þess að fara í tékk. Aðföng fyrir sölubúðir og veitingastaði fara einnig í gegnum öryggisleit. Þannig fylgjumst við með því þegar bjórkútum er rennt inn í gegnumlýsingartæki.
Starfsmenn flugvallarins sem og áhafnir flugvéla fara í gegnum öryggisskoðun í sérstökum starfsmannahliðum. Allir þurfa að lúta reglunum.
„Og það eru sumir sem gera það ekki. Við höfum neitað fólki að komast í gegn,“ segir Rizza Katrín Thomasdóttir flugverndarstarfsmaður.
„Sumt fólk er bara með stæla eða er ekki að fylgja reglum. Það er bara, því miður, höfum við neitað fólki að koma í gegn,“ segir Rizza Katrín.Fjallað er um Keflavíkurflugvöll í nítjánda þætti Flugþjóðarinnar. Áskrifendur geta séð alla þættina hvenær sem er á streymisveitunni Sýn+.Í kynningarstiklu má sjá dæmi um efni þáttanna sjö í þriðju seríu Flugþjóðarinnar: