Farsímasala hjá Elko hefur aukist lítillega frá því að slökkt var á 2G- og 3G-sendum hérlendis. Framkvæmdastjóri Elko segir ekki hægt að tengja það beint við útfösun eldra farsímakerfis, þar sem margt annað hafi áhrif á söluna.
„Við höfum séð lítilsháttar aukningu í sölu farsíma, undanfarna þrjá mánuði, sérstaklega í ódýrari tækjum. Ég get ekki fullyrt að sú aukning tengist útfösun 2G- og 3G-kerfana, þar sem það eru fleiri þættir sem hafa áhrif á söluna hjá okkur,“ segir Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Elko.
Elko selur töluvert af farsímum á hverju ári. Þegar upplýsingar bárust frá Fjarskiptastofu árið 2022 um að 2G- og 3G-kerfið væri á útleið tók Elko þau tæki sem virkuðu eingöngu á þau úr sölu. Óttar segir að meðal líftími símtækja sé þrjú til fögur ár, þó að sumir dugi eitthvað lengur. Oft sé nóg að uppfæra eldri tækin til þess að þau virki á 4G og 5G.
„Við höfum fengið bara örfáar fyrirspurnir frá okkar viðskiptavinum sem eiga eldri síma. Í flestum tilfellum hefur verið nóg að uppfæra símana til þess að þeir virki á Neyðarlínunúmerið,“ segir Óttar og bætir við að óski viðskiptavinir Elko eftir því sé minnsta málið að aðstoða þá við uppfærslu.
Fólk enn í vandræðum með að ná í Neyðarlínuna
Enn ber á því að fólk nái ekki sambandi við neyðarnúmer og landsmenn eru hvattir til þess að hringja í 1280 og athuga hvort sími þeirra virkar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvatti borgarbúa til þess fyrir nokkrum dögum að hringja í símanúmerið 1280 og kanna hvort síminn næði sambandi við Neyðarlínuna. Fréttastofa greindi frá í síðustu viku að borið hefur á því að fólk geti hringt venjuleg símtöl í símum sínum en síminn virki ekki þegar hringja eigi í Neyðarlínuna, síminn fari í neyðarham og leiti á víðtækasta netið sem hann er stilltur á, sem er 2G eða 3G sem er búið að slökkva á á Íslandi. Það stóð ekki á athugasemdunum til lögreglunnar. Fólk kvartaði yfir því að ná ekki í gegn, eða að ná til 1280 en ekki í 112, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Óttar Örn segir að ákvörðunin um að loka á 2G og 3G sé alfarið á ábyrgð fjarskiptafélaganna, sem eigi og reki kerfið.
„Í hnotskurn eru þetta fjarskiptafélögin sem taka ákvörðun um lokun þessara neta ásamt Fjarskiptastofu. Þannig að við í rauninni reynum bara að selja símtæki sem virka á þau kerfi sem eru í boði.“