Hörðum diski með afriti af óútgefinni bíómynd var stolið af skrifstofum streymisveitunnar Netflix. Kvikmyndagerðarmennirnir að baki henni hafa lögsótt streymisveituna.
Kvikmyndin Fortitude er njósnatryllir sem gerist á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Nicolas Cage fer með aðalhlutverk og auk hans koma fram leikararnir Matthew Goode, Michael Sheen og Ben Kingsley.
Það tók um sjö ár að gera myndina og kostaði tæpa sex milljarða króna.
Netflix segist ekki bera ábyrgð
Framleiðendur hennar vilja meira en 13 milljarða króna í bætur frá Netflix. Þeir halda því fram að framtíðarsölu myndarinnar hafi verið teflt í tvísýnu.
Í frétt Guardian segir að Netflix hafi fengið stafrænt afrit af myndinni í júní. Það var ætlað til áhorfs innanhúss og að því loknu átti að eyða því.
Netflix hafnar því að fyrirtækið beri ábyrgð á þjófnaðinum í ljósi þess að myndinni var skilað þangað án þess að notaðar væru staðalaðferðir kvikmyndaiðnaðarins. Streymisveitan kveðst hafa ráðist í rannsókn á málinu og boðist til að vakta þekktar sjóræningasíður til að athuga hvort myndin fer í dreifingu.