Sjálfstæðisflokkurinn fer fram á þingstubb í ágúst í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þá verði einnig hægt að afgreiða fjármálaáætlun.
„Má ég minna á hvernig þessi ríkisstjórn byrjaði með framkomna fjármálaáætlun hér á síðasta þingi. Þá gekk stjórnarandstaðan út vegna þess að það var óboðleg, sú framsetning sem var á fjármálaáætluninni,“ sagði Bryndís í ræðu sinni á þingi undir ræðuliðnum Fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031.
Forsendurnar brostnar
„Það var samþykkt hér að reyna að taka málefnalega umræðu í fyrri umræðu um fjármálaáætlun vegna þess að fyrir lá skriflegt loforð um það að næst þegar fjármálaáætlun kæmi fram þá kæmu þessi gögn sem þingmenn þurfa á að halda til að taka málefnalega umræðu um fjármálaáætlun.“
Núna liggi fyrir nefndarálit sem viðurkenni þann mikla vanda sem upp er kominn. Hún sagði forsendur fjármálaáætlunar brostnar.
„En hver eru viðbrögð meiri hluta fjárlaganefndar? Engin,“ sagði hún.
Geta hæglega klárað fjármálaáætlun í ágúst
Hún sagði að ótækt væri annað en að umræðu um fjármálaáætlun yrði frestað.
„Ríkisstjórnin reiknar þetta upp og hægt er að taka þessa umræðu, mögulega á þeim stubb í ágúst sem við í Sjálfstæðisflokknum höfum allavega farið fram á að verði í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem ráðherrar geta þá setið til svara um málefni þjóðaratkvæðagreiðslunnar og við gætum hæglega klárað fjármálaáætlun þar.“