Maður sem fannst í gili við Háafoss í kvöld var látinn þegar björgunarsveitir fundu hann. Frá þessu greinir lögreglan á Suðurlandi í tilkynningu.
„Nú á sjöunda tímanum í kvöld barst tilkynning um meðvitundarlausan einstakling við Háafoss. Viðbragðsaðilar voru boðaðir á fyrsta forgangi. Einstaklingurinn var látinn þegar að var komið. Fleiri upplýsingar verða ekki gefnar að sinni.”
Björgunarsveitir voru kallaðar út í hæsta forgangi eftir að ferðamenn sáu til mannsins í gilinu. Ekki liggur fyrir hvort um er að ræða manninn sem björgunarsveitir leituðu fyrr í vikunni, en þar var um að ræða ferðamann sem skilaði sér ekki á gististað á þriðjudaginn.
Sjá einnig:Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss