Fréttastofur víða um heim hafa unnið að því að sannreyna myndefni sem er í mikilli dreifingu á netinu undir þeim formerkjum að þar séu svipmyndir frá mótmælunum í Frakklandi. Sumar myndir og myndskeið eru settar fram á röngum forsendum, jafnvel búnar til með gervigreind.
Segja má að mótmælin hafi náð einhvers konar hápunkti síðastliðinn laugardag. Gríðarlegur fjöldi fólks kom saman um allt Frakkland og lét óánægju sína í ljós. Flestir gengu friðsamlega fram en einnig mátti sjá ýmislegt sem á lítið skylt við friðsöm mótmæli, til dæmis skemmdarverk, gripdeildir og ofbeldi.
Frönsk stjórnvöld segja öfga-vinstrihreyfingar bera ábyrgð á óeirðunum.
Innflytjendum kennt um óeirðirnar
Á netinu er umræða um að innflytjendur, og þá aðallega þeir sem eru múslimar, beri ábyrgðina. Undir þetta taka hægri sinnaðir stjórnmálamenn eins og Donald Trump Bandaríkjaforseti og Santigo Abascal leiðtogi spænska stjórnmálaflokksins VOX. Kosningar eru í næsta mánuði bæði í Bandaríkjunum og á Spáni.
SVT Verifierar er deild hjá sænska ríkisútvarpinu sem sannreynir upplýsingar og myndefni. Hér fyrir neðan má sjá myndskeið þar sem fréttamaður fer yfir myndefni sem hefur verið í dreifingu í tengslum við mótmælin í Frakklandi.
Síðasta myndin sem fréttamaður fer yfir í myndskeiðinu á að vera af eldri hjónum sem mótmælendur rændu og afklæddu á götum Parísar.
Franski miðillinn France 24 hefur skoðað sömu mynd og aðra svipaða sem hafa fengið mjög mikla dreifingu á samfélagsmiðlum og einnig í hefðbundnum miðlum. Ísraelski miðillinn C14 birtir þessa mynd með fyrirsögninni „Íslam leggur Evrópu undir sig“.
Þegar myndin er skoðuð nánar kemur í ljós að á henni er svokallað Synth-ID. Það er eins konar ósýnilegt, stafrænt vatnsmerki sem er á myndum gerðum með gervigreindarþjónustu Google.
France 24 reyndi engu að síður að komast að því hvort það gæti samt sem áður eitthvað verið til í sögunni um eldri hjónin.
Franska sendiráðið leggur orð í belg
Frumheimildin sem allir aðrir styðjast við er frétt á franska miðlinum BFM. France 24 höfðu samband við þann sem skrifaði fréttina og hann segist hafa fengið þessar upplýsingar frá lögreglu á laugardaginn. Sagan hefur ekki fengist staðfest hjá öðrum en blaðamanninum.
Franska sendiráðið á Íslandi hefur líka blandað sér í umræðuna um falsfréttir.
Eftirfarandi færsla birtist á aðgangi sendiráðsins á X: „Erlendir leiðtogar sem nýta sér atburði í Frakklandi í pólitískum tilgangi, án þess að þekkja til staðreynda, ættu að sýna stillingu, virðingu og samstöðu. Franska utanríkisráðuneytið er reiðubúið að leiðrétta rangfærslur og koma í veg fyrir útbreiðslu falsfrétta.“
Í frétt AFP um að hægri öfl víða um heim vilji kenna innflytjendum um óeirðirnar í Frakklandi kemur fram að engin tengsl hafi fundist þarna á milli.
Óeirðirnar í Frakklandi séu þó vinsælt umræðuefni hjá stjórnmálamönnum í Bandaríkjunum, á Spáni og í Ísrael.