Tillaga um að fella niður virðisaukaskatt af bensíni og dísilolíu var samþykkt við þriðju umræðu á færeyska lögþinginu í dag. Á vef færeyska ríkissjónvarpsins, Kringvarpsins, segir að lögin taki væntanlega gildi á morgun.
Lögin um afnám virðisaukaskatts af eldsneyti í Færeyjum gilda til 31. júlí. Kringvarpið hefur eftir Akseli V. Johannesen, fjármálaráðherra Færeyja, að heimastjórnin muni þá meta stöðuna.
Hér á Íslandi hefur virðisaukaskattur á eldsneyti verið lækkaður úr 24% í 11% til að bregðast við verðhækkunum á olíu á heimsvísu. Lækkunin gildir til 31. ágúst.