Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti nýtt fjárlagafrumvarp á blaðamannafundi í morgun og þar með var frumvarpið birt á síðu stjórnarráðsins. Nýjar heimildir Daða sem ráðherra eru þar reifaðar og verði frumvarpið samþykkt í þessari mynd hefur hann heimild til þess að setja á sölu eða ráðstafa með öðrum hætti fjölda bygginga í eigu ríkisins.
Fjármálaráðherra hefur þegar haft heimild til að selja fjölda eigna en þær sem bætast við eru Laugarnesvegur 91, þar sem Listaháskóli Íslands er til húsa, Flugstöðin á Aðaldalsflugvelli, Hofsvallagata 53, sem Háskóli Íslands notar undir starfsemi sína undir heitinu Hagi, og Hafnarstræti 1 á Ísafirði, sem ber heitið Stjórnsýsluhúsið.
Nýjar fasteignir á listanum eru einnig Dugguvogur 52, Skipholt 37, Laufásvegur 14 í Reykjavík og Vesturgata 62 á Akureyri.
Sem fjármálaráðherra hafði Daði Már þegar heimild til að setja lögreglustöðina við Hverfisgötu á sölu en þar eru bæði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóri til húsa. Austurstræti 19 í Reykjavík og Vesturvör 2 gætu einnig farið á sölu en þar eru Héraðsdómur Reykjavíkur og Landsréttur til húsa.
Þar undir fellur einnig flugstöðin á Þingeyri, Kópavogsbraut 5a-c í Kópavogi þar sem sambýli er til húsa og loks Skógarhlíð 6 sem fer undir starfsemi Björgunarmiðstöðvarinnar.