Eyjólfur Ingvi Bjarnason, formaður deildar sauðfjárbænda innan Bændasamtaka Íslands, segir það of algengt að keyrt sé á kindur og ekki látið vita. Segir hann að í sveitunum séu ökumenn gestir í umhverfi kindanna og bera þurfi virðingu fyrir lífi þeirra.Í aðsendri grein á Vísi bendir Eyjólfur á að flestir séu á faraldsfæti þessar vikurnar. Fram undan sé Verslunarmannahelgin, stærsta ferðahelgi ársins.
Eyjólfur segir of algengt að keyrt sé á kindur og ekki látið vita – Í sveitum séu ökumenn gestir í umhverfi kindanna