Enn eru lausir endar í fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Flýti- og umferðargjöld eru eitt af því sem er til skoðunar en fjármálaráðherra segir að verið sé að skoða aðrar lausnir.
Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður 2019 og uppfærður fimm árum síðar. Hann er fjármagnaður með beinum framlögum ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu auk þess sem gert er ráð fyrir að tekjur af sölu lóða í Keldnalandi renni til sáttmálans frá og með 2028.
Frá 2030 er gert ráð fyrir að tekjur af umferð, eða önnur fjármögnun, standi undir framkvæmdum.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að undanfarið hafi átt sér samtal milli ríkis og sveitarfélaga um fjármögnunina sem hann segir að hafi að hluta verið skilin eftir í lausu lofti. Viðbúið sé að tekjur af Keldnalandi skili sér síðar en 2028.
„Það er líklegt að það muni tefjast eitthvað en samtöl okkar við Reykjavíkurborg hafa snúist um með hvaða hætti skipulagið yrði þróað í ljósi breyttra aðstæðna. Þannig að nákvæmlega hvenær þetta hefst liggur kannski ekki fyrir á þessum tímapunkti en þessi samtöl hafa öll verið mjög uppbyggileg.“
Í svari ráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, um fjármögnun sáttmálans segir að flýti- og umferðargjöldum sé ætlað að fjármagna verkefni sáttmálans og hafa áhrif á umferð, til að mynda draga úr álagi á álagstímum.
Slík gjöld eru sögð hafa gefist vel í Gautaborg og Stokkhólmi. Þau virka þannig að gjald er greitt fyrir að keyra ákveðnar leiðir, þar sem umferð er mikil og aðrir samgöngukostir eru í boði.
Í sáttmálanum er gert ráð fyrir að þetta verði tekið upp eftir fjögur ár en Daði Már segir að verið sé að skoða aðra kosti.
„Þetta eru hugmyndir fyrri ríkisstjórnar um einhver gjaldtökuhlið af umferðinni í Reykjavík. Við höfum áhuga á að skoða hvort það séu aðrir möguleikar í stöðunni.“