Lögregluyfirvöld í svissnesku borginni Aarau segja ekkert vitað hverjir frömdu skotárás undir lok raftónlistarhátíðar í nótt þar sem 22 ára kona týndi lífi. Lögregla segir að konan hafi verið látin þegar björgunarlið bar að og hefur ekki viljað greina frá nafni hennar að svo stöddu því ekki hefur náðst í ættingja hennar.
Fimm særðust til viðbótar. Gerendurnir hafi ekki skilið eftir sig nokkur spor auk þess sem engar ljósmyndir hafa fundist af þeim. Þetta kom fram á blaðamannafundi lögreglunnar klukkan tvö að staðartíma í dag.
Ekkert liggur fyrir um ástæðu árásarinnar en ein kenning er að til átaka hafi komi með þessum afleiðingum. Umfangsmikil leit stendur yfir en lögregla telur að ódæðismaðurinn eða -mennirnir hafi flúið borgina og því vofi engin hætta lengur yfir af þeirra völdum.