Algengt er að barnaníðingar nýti sér samskiptamiðilinn Snapchat til að komast í kynni við börn. DV hefur nú undir höndum ákæru héraðssaksóknara gegn manni sem ákærður er fyrir nettælingu og kynferðislega áreitni gegn barni , á tímabilinu ágúst 2020 til október sama ár.
Maðurinn er annars vegar sakaður um að hafa sett sig í samband í nokkur skipti við 12 ára stúlku í gegnum Snapchat og eftir atvikum í gegnum aðra samfélagsmiðla, og mælt sér mót við barnið í því skyni að áreita það kynferðislega.
Hins vegar er maðurinn sakaður um að hafa í nokkur skipti, er hann hitti stúlkuna, kysst hana tungukossi auk þess að kípa hana í rass utanklæða.
Fyrir hönd barnsins er krafist 2,5 milljóna króna í miskabætur.
Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 16. júní síðastliðinn. Þinghald í málinu er lokað.