Framleiðsla var stöðvuð í annarri af tveimur kerlínum álvers Norðuráls í október síðasta árs en var það í kjölfar bilunar í rafbúnaði álversins sem varð þriðjudaginn 21. október. Bilunin olli því að álframleiðsla á Grundartanga skertist um tvo þriðju.
Þá var óljóst hve langan tíma tæki að koma framleiðslunni í fullan gang á ný og hafði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra orð á því að staðan væri grafalvarleg. Formaður Verkalýðsfélags Akraness sagði einnig frá því að félagsfólk væri kvíðið vegna stöðunnar.
Frá upphafi lá fyrir að tekið gæti heilt ár að fá nýja spenna til landsins og enn er áætlað að þeir verði komnir og tilbúnir til uppsetningar næsta haust, segir í tilkynningu frá Century aluminum, móðurfélagi Norðuráls. Til að stytta þann tíma sem kerlínan liggur niðri hafi strax hafist vinna við að athuga hvort hægt væri að gera við biluðu spennana og nota þá tímabundið, þar til þeir nýju kæmu til landsins.
„Sú vinna, sem fór fram í nánu sambandi við hönnuð og framleiðanda búnaðarins, hefur skilað því að hægt verður að hefja fulla framleiðslu nokkrum mánuðum fyrr en ella,“ segir í tilkynningu.
Engum sagt upp
Tæplega sjö hundruð manns starfa hjá fyrirtækinu en í tilkynningu segir að ákveðið hafi verið að fækka ekki í starfsmannahóp fyrirtækisins í kjölfar bilunarinnar. Það hefur frá því að bilunin kom upp unnið við að gera kerlínuna tilbúna fyrir endurræsingu.„Ljóst er að fyrirtækið væri ekki jafnvel í stakk búið til að hefja framleiðslu og raun ber vitni ef ekki væri fyrir það einvala lið sem hjá Norðuráli starfar,“ segir jafnframt í tilkynningunni.